Sérstaða
Þrennt sem almenn þýðingarvél gerir ekki
Frumtexti
Umsækjandi Amir Haddad, kt. 120488-3229, með dvalarstað að Bláskógum 14, óskar eftir endurupptöku í máli nr. 2026/114.
Það sem fer út
Umsækjandi Amir Haddad, kt. 120488-3229, með dvalarstað að Bláskógum 14, óskar eftir endurupptöku í máli nr. 2026/114.
Auðkennin eru falin hjá okkur, ekki hjá þýðingarvélinni.
Myndir og skönnuð skjöl
Styður ljósmyndir úr síma og skannað efni, ekki aðeins ritvinnsluskjöl. Ljóslestur keyrir sjálfkrafa áður en þýtt er.
Afmáð fyrir sendingu
Kerfið finnur persónugreinanleg gögn og felur þau áður en nokkur texti fer til þýðingarvélarinnar.
Lifandi viðtal
Rauntímaumritun og þýðing í viðtalsherberginu, ásamt umritun á áður teknum upptökum.
Kynning
Þýðandinn í notkun
Farið er yfir vinnuborðið, yfirferð persónuauðkenna, svertun, ljóslestur, viðtalsþýðingu og fundi fyrir almenning.
Eiginleikar
Frá upphleðslu að rekjanlegri þýðingu
Fjögur þrep frá því að skjal berst þar til rekjanleg þýðing liggur fyrir, með tólf virknisviðum í einu viðmóti.
Þýðingarferillinn styður Word, PDF, símamyndir og skönnuð afrit. Skjalasniðið er lesið og staðlað og heildar síðufjöldi sést áður en nokkuð er sent.
- Upphleðsla og sniðWord, PDF, texti, HTML og myndir af skjölum. Símamyndum á HEIC- og WebP-sniði er umbreytt sjálfkrafa.
- LjóslesturSkannað efni er lesið með myndlíkani. Mynd, umritun og þýðing sjást á sama skjá, svo lesturinn er sannreynanlegur.
- Skanni í símaHröð vettvangsþýðing með símaviðmótinu. Tekur mynd af skjali, svertu öll viðkvæm svæði áður og kerfið snögg þýðir efni skjalsins og birtir þér upplýsingarnar.
Starfsmaðurinn ákveður hvaða persónupplýsingum er haldið eftir og sér það skýrt áður en sent er. Þýðing er ekki möguleg fyrr en tekin hefur verið ákvörðun um allar persónuupplýingar í skjalinu.
- Yfirferð persónuauðkennaKerfið stingur upp á auðkennum og starfsmaðurinn samþykkir, hafnar eða lætur bíða.
- SvertunSvartir reitir teiknaðir yfir persónuupplýsingar, skilríkjanúmer, undirskriftir og stimpla. Textalagið undir er fjarlægt, svo ekkert leynist undir kassanum.
Umritun og þýðing jafnóðum, hvort sem viðtalið er í herberginu, á eldri upptöku eða á fundi þar sem ekki allir tala íslensku.
- Viðtal í rauntímaTímastimpluð umritun með þýðingu jafnóðum á mörgum tungumálum samtímis. Raddir eru aðgreindar og öll samtöl í herberginu eru þér sýnileg.
- Greining í viðtaliValkvæð viðbót um ábendingar um túlkun, misræmi og framhaldsspurningar á meðan viðtalið stendur enn. Kerfið bendir á, en leggur ekki mat.
- Frágangur viðtalsNafngift mælenda, leiðrétting á ranglega merktum línum og útflutningur á tvítyngdri umritun með vottun.
- Fundir fyrir hópaGestgjafi deilir hlekk, QR-kóða og lykilnúmeri. Þátttakendur lesa á sínu tungumáli í eigin síma, án innskráningar og án símaforrits.
Þýðingin heldur sniði skjalsins, ber vottun sem leggja má fram með málsgögnum, og notkunin er sundurliðuð svo reikninginn má sannreyna.
- Uppsetning varðveittÞegar textaskjöl eru þýdd haldast fyrirsagnir, töflur og stílar. Þrjú skýr þrep sýna hvar skjalið er statt í vinnslu.
- Útflutningur og vottunWord, PDF, texti og Markdown. Hverju skjali fylgir þýðingavottun með kerfi, tíma, tungumálapari og fyrirvara um vélþýðingu.
- NotkunaryfirlitMánaðarleg notkun liðsins, sundurliðuð eftir starfsmanni og aðgengileg öllum í liðinu, ekki bara stjórnendum.
Persónuvernd og öryggi
Örugg meðhöndlun viðkvæmra gagna
Þýðandinn er hannaður út frá þeirri forsendu að efnið sem fer í gegnum hann sé viðkvæmt. Þess vegna geymir kerfið eins lítið og mögulegt er.
Ekkert vistað
Efni skjala og viðtala lifir aðeins í vinnsluminni, í mest 60 mínútur. Engin viðkvæm gögn eru skrifuð á disk eða í gagnagrunn. Notandinn getur framlengt lotu um fjórar klukkustundir, en eftir það er ekkert hægt að endurheimta.
Persónuupplýsingar fjarlægðar
Persónugreinanleg gögn eru fundin og hulin áður en þau yfirgefa Þýðandann. Þegar notuð eru textaskjöl fær þýðingarvélin aðeins texta þar sem auðkennin hafa þegar verið sjálfvirkt tekin út.
Innan EES
Öll varanleg vistun og vinnsla persónuupplýsinga fer fram innan Evrópska efnahagssvæðisins, og engin gögn eru notuð til þjálfunar á gervigreind.
Aðgangur og dulritun
Dulritun í flutningi og í geymslu. Aðgangur að kerfinu fæst aðeins með boði, með margþátta auðkenningu eða aðgangslyklum.
Rekjanleg afurð
Hverri þýðingu fylgir vottun sem tilgreinir kerfi, útgáfu, tíma, tungumálapar og fyrirvara um vélþýðingu, til að tryggja rekjanleika.
Úttektir og samningar
Vinnslusamningur og mat á áhrifum á persónuvernd liggja fyrir. Heildaráhætta metin lág í öryggisúttektum ársins 2026.
Undantekningar
Tvær vinnslur fara út fyrir EES: ljóslestur skannaðra skjala og greiningin í viðtali. Stjórnandi liðsins getur slökkt á greiningunni, og þá heldur umritunin áfram óbreytt. Ljóslesturinn fær aðeins skjöl þar sem persónuupplýsingar hafa þegar verið afmáðar eða svertar.
Lesa persónuverndarstefnunaAðgangur
Þýðandinn er boðsþjónusta
Lausnin er í boði fyrir stjórnsýslu, dómsýslu og löggæslu samkvæmt þjónustusamningi. Það er engin sjálfsskráning: stofnunin fær lið í kerfinu og sendir sjálf boð á sitt starfsfólk. Hafðu samband ef stofnunin þín vill fá aðgang.